fbpx
Fimmtudagur 30.apríl 2026
433Sport

Fá að spila í fyrsta sinn í átta ár

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Afganska kvennalandsliðið í knattspyrnu mun snúa aftur á alþjóðlega sviðið eftir að FIFA samþykkti reglubreytingu sem gerir liðinu kleift að taka þátt í keppnum.

Liðið hefur ekki spilað landsleik síðan 2018, en eftir að Talibanar tók völdin árið 2021 var íþróttaiðkun kvenna bönnuð og margir leikmenn neyddust til að flýja land.

Með nýju reglunni getur FIFA, við sérstakar aðstæður, viðurkennt landslið þrátt fyrir að það sé ekki formlega skráð af knattspyrnusambandi viðkomandi lands.

Fyrrum fyrirliði liðsins, Khalida Popal, segir endurkomuna vera mikilvægt skref.

„Við höfum alltaf verið baráttulið, en nú fáum við tækifæri til að sýna hæfileika okkar og styðja við konur í Afganistan,“ sagði hún.

Afganska liðið verður ekki með í undankeppni HM 2027 en gæti tekið þátt í undankeppni Ólympíuleikanna 2028 og er stefnt að því að liðið spili sína fyrstu leiki í júní.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Bendir á vandamál í leik Arsenal – Leikmaður að í vitlausu hlutverki

Bendir á vandamál í leik Arsenal – Leikmaður að í vitlausu hlutverki
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Rooney hjólar nokkuð fast í Harry Kane eftir þessi ummæli hans í gær

Rooney hjólar nokkuð fast í Harry Kane eftir þessi ummæli hans í gær