
Atletico Madrid tók á móti Arsenal í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Arsenal var ívið sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og undir lok hans fékk liðið vítaspyrnu þegar brotið var á Viktor Gyokeres í teignum. Hann fór sjálfur á punktinn og skoraði.
Staðan í hálfleik var 0-1 en heimamenn komu mun sterkari út í seinni hálfleikinn. Fékk liðið víti eftir um tíu mínútur þar sem boltinn fór í höndina á Ben White. Julian Alvarez skoraði úr spyrnunni og allt jafnt.
Atletico var áfram með öll völd á vellinum eftir þetta en Arsenal hélt þó að liðið væri að fá víti þegar stundarfjórðungur var eftir er brotið var á Eberechi Eze. Dómarinn benti á punktinn en hann sneri dómnum við eftir skoðun í VAR.
Lokatölur 1-1 og allt galopið fyrir seinni leikinn í London á þriðjudag.