fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
433Sport

Vonar að United eyði miklum fjármunum í leikmenn í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 10. apríl 2026 10:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harry Maguire segir að Manchester United þurfi að eiga stórt sumar á félagaskiptamarkaðnum til að byggja á góðu gengi undanfarið.

Maguire hefur skrifað undir nýjan samning sem bindur hann við félagið til ársins 2027 og vill nú sjá frekari styrkingar í leikmannahópnum. United er í þriðja sæti deildarinnar og á góða möguleika á að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

„Ég vil alltaf vera hluti af liði sem getur barist um titla. Við keyptum góða leikmenn í fyrra og það skilaði sér,“ sagði Maguire.

Hann telur að félagið þurfi að halda áfram á sömu braut. „Þetta verður stórt sumar. Við verðum að kaupa vel inn og styrkja hópinn,“ bætti hann við.

Maguire benti einnig á að breidd hópsins skipti miklu máli, sérstaklega þar sem United mun líklega taka þátt í fleiri keppnum á næsta tímabili.

„Við þurfum stærri hóp til að takast á við álagið,“ sagði hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Lést þegar hann fór út að hlaupa að morgni

Lést þegar hann fór út að hlaupa að morgni
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Telur dómara reyna allt til þess að Ronaldo verði meistari

Telur dómara reyna allt til þess að Ronaldo verði meistari
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Er að skrifa undir nýjan samning

Er að skrifa undir nýjan samning