fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
433Sport

Eiður Smári segir lygilega sögu af heimsfrægum manni – „Þetta er viðjóðslegt, en andskotinn hafi það“

433
Föstudaginn 10. apríl 2026 18:30

Skjáskot: Dr. Football

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnugoðsögnin Eiður Smári Guðjohnsen sagði skemmtilega sögu af gömlum liðsfélaga í Chelsea í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag.

Í umræðu um meiðsli leikmanna og að spila þrátt fyrir óþægindi rifjaði Eiður Smári upp sögu af Argentínumanninum Hernan Crespo, en þeir léku saman með Chelsea á sínum tíma.

„Hernan Crespo ákvað að hann gæti ekki spilað heimaleik á móti Arsenal af því hann hafði klippt nöglina á stóru tá aðeins of mikið,“ sagði Eiður.

Hann var gáttaður á þessu á sínum tíma, enda stór leikur, þrátt fyrir að hann viti að það sé vont að lenda í þessu.

„Þetta er viðjóðslegt, en andskotinn hafi það. Ég fagnaði því þá vissi ég að ég myndi byrja leikinn,“ sagði Eiður og hló.

„Ég held að sársaukaþröskuldur manna sé bara mjög misjafn, þetta er svona eins og „man flu.“ Ofboðslega verða sumir veikir þegar þeir fá flensu. Aðrir bíta bara á jaxlinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Bruno fer yfir þá hluti sem Carrick hefur breytt

Bruno fer yfir þá hluti sem Carrick hefur breytt
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Þrjú ensk stórlið og PSG á eftir 100 milljón punda manninum

Þrjú ensk stórlið og PSG á eftir 100 milljón punda manninum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Vonar að United eyði miklum fjármunum í leikmenn í sumar

Vonar að United eyði miklum fjármunum í leikmenn í sumar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Er að skrifa undir nýjan samning

Er að skrifa undir nýjan samning
433Sport
Í gær

Ætla ekki að borga verðið sem samið var um – Vilja lækka það hressilega

Ætla ekki að borga verðið sem samið var um – Vilja lækka það hressilega
433Sport
Í gær

Katla dvaldi á spítala í viku – „Þetta voru bólgur og sýking í nýra, ekki næs“

Katla dvaldi á spítala í viku – „Þetta voru bólgur og sýking í nýra, ekki næs“