
Declan Rice fór meiddur af velli í sigri Arsenal gegn Chelsea í gær. Ekki er víst hvort hann verði eitthvað meira frá.
Arsenal vann leikinn 2-1 og lagði Rice upp mark. Hann fór út af síðar og staðfesti stjóri Arsenal, Mikel Arteta, að það hefði verið vegna meiðsla.
„Hann þurfti að fara út af. Við þurfum að skoða hann og sjá hvort hann verði klár á miðvikudag, því miður,“ sagði Arteta, en Skytturnar heimsækja Brighton á miðvikudag.
Rice birti færslu á Instagram eftir leik þar sem hann minntist ekkert á meiðslin heldur birti mynd af sér fagna.
„Við höldum áfram,“ skrifaði hann með myndinni og stuðningsmenn Arsenal vonast til þess að þetta þýði að meiðslin séu aðeins smávægileg.