
Curtis Jones er á radarnum hjá Inter fyrir sumarið ef marka má fréttir frá Ítalíu.
Miðjumaðurinn mun aðeins eiga ár eftir af samningi sínum hjá Liverpool í sumar og gæti félagið skoðað það að selja hann til að forðast það að missa hann frítt.
Inter hyggst nýta sér það og undirbýr það að reyna að lokka hinn 25 ára gamla Jones til sín.
Jones er uppalinn hjá Liverpool og er með þokkalega stóra rullu, en hann yrði að öllum líkindum í stærra hlutverki hjá Inter.