
FC Kaupmannahöfn, sem hefur lengi verið talið eitt allra stærsta knattspyrnulið Skandinavíu, missti af því að vera fyrir ofan strik er dönsku úrvalsdeildinni var tvískipt eftir lokaumferð hefðbundins móts í gær.
Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem FCK missir af efstu sex og spilar ásamt liðunum í neðri hluta deildarinnar eftir tvískiptingu. Þetta varð ljóst með tapi gegn Randers á heimavelli í gær. Spjótin beinast því eðlilega að þeim sem stjórna, ekki síst Jacob Neestrup, þjálfara liðsins.
Stjórn FCK rak Sune Smith-Nielsen úr starfi yfirmanns knattspyrnumála á dögunum. Hefur því verið haldið fram að hún standi á bak við Neestrup. Stuðningsmenn eru margir hverjir ekki sáttir við það og vilja hann burt hið snarasta.
Neestrup gerði FCK að tvöföldum meisturum í fyrra er liðið vann deild og bikar. Þá kom hann liðinu í deildarkeppni Meistaradeildarinnar, þar sem liðið gerði ágætis hluti en missti af sæti í útsláttarkeppninni.
„Það eru líklega margar spurningar sem hægt er að spyrja núna. Það er hins vegar erfitt að setja þetta í orð. Ég held að þetta sé verðskuldað,“ sagði Neestrup ómyrkur í máli í gær.
„Við höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur of lengi og lifað í fortíðinni, á því að vinna tvöfalt í fyrra og komast í Meistaradeildina,“ sagði hann enn fremur.
FCK horfir nú væntanlega í það að reyna að vinna neðri hlutann, en 7. sæti (efsta sæti neðri hlutans) gefur umspilsleik gegn liðinu í 3. eða 4. sæti (fer eftir niðurstöðu í bikarkeppni) efri hlutans um Evrópusæti.
Þá er FCK einnig í undanúrslitum bikarkeppninnar, svo það er hægt að bjarga tímabilinu að einhverju leyti enn þá.