fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fjölskylduharmleikur um liðna helgi – Barði mömmu sína til óbóta áður en hann keyrði í burtu og tók eigið líf

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 20:30

Riccardo og móðir hans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil sorgaratburður hefur átt sér stað á Ítalíu þar sem ungur knattspyrnumaður er sagður hafa ráðist á móður sína áður en hann lét lífið skömmu síðar.

Riccardo Merkuri, 20 ára, og móðir hans Albana Kastriot, 53 ára, voru að borða kvöldmat á heimili sínu í Pollenza föstudaginn 20. febrúar þegar rifrildi átti sér stað. Faðir hans og bróðir voru ekki heima á þeim tíma. Nágrannar heyrðu hávaða og kölluðu til lögreglu.

Við leitina.

Þegar lögregla mætti á vettvang fannst Albana meðvitundarlaus á baðherbergi, umkringd blóði. Hún var flutt á sjúkrahús í Macerata þar sem hún var sett í lyfjaframkallað dá. Hún er með kjálkabrot og aðra áverka í andliti, en líf hennar er ekki talið í hættu.

Riccardo hafði þá flúið vettvang. Hann ók til Civitanova Marche, gekk út á bryggju og kastaði sér í sjóinn. Öryggismyndavélar sýndu hann komast upp úr sjónum og stökkva síðan aftur út í.

Leit stóð yfir í 38 klukkustundir og á sunnudag fannst lík hans. Réttarlæknir staðfesti að hann lést af völdum ofkælingar og drukknunar.

Merkuri lék með áhugamannaliðinu ASD Montemilone Pollenza og hafði nýlega hafið störf sem verkamaður. Tekin hafa verið sýni til að kanna hvort efni hafi verið í líkama hans, en ekkert bendir til þess að hann hafi verið í neyslu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug