fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Napoli setur þetta í forgang og eru tilbúnir að hækka launin

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 07:00

McTominay og frú að njóta á Ítalíu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Napoli hefur gert það að forgangsverkefni að halda Scott McTominay hjá félaginu, samkvæmt spænska miðlinum Fichajes.

Skoski miðjumaðurinn, sem kom til Napoli frá Manchester United, hefur staðið sig vel á Ítalíu og vakið áhuga annarra félaga. Ítalska blaðið Corriere dello Sport greinir frá því að Napoli hafi þegar hafið viðræður við McTominay um nýjan samning.

Markmið Napoli er að tryggja framtíð leikmannsins og koma í veg fyrir að félög úr ensku úrvalsdeildinni reyni að fá hann til baka í sumar. Talið er að félagið sé tilbúið að bjóða honum bætt kjör til að halda honum í Napólí.

Núverandi samningur McTominay við Napoli gildir til ársins 2028, þannig að félagið er ekki undir mikilli pressu að selja.

McTominay hefur fest sig í sessi sem mikilvægur hlekkur á miðju Napoli og stuðningsmenn hafa tekið honum vel. Forráðamenn félagsins virðast því staðráðnir í að byggja áfram á honum til framtíðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs