fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Arteta svarar fyrir atvikið í bílnum – „Annars verður maður berskjaldaður, fastur í bílnum og líður ekki vel“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segist hafa fundið sig „berskjaldaðan“ eftir atvik sem átti sér stað þegar hann yfirgaf Emirates-völlinn eftir sigur liðsins á Wigan í enska bikarnum á sunnudag.

Myndband sem fór í dreifingu á samfélagsmiðlum sýnir stuðningsmann elta bíl Arteta og ítrekað biðja hann um að skrúfa niður rúðuna og skrifa á treyju. Arteta sinnti beiðninni ekki. Fjölskylda hans var með í bílnum sem sat fastur í umferð fyrir utan leikvanginn.

Arsenal endurskoðaði öryggismál leikmanna og starfsfólks fyrir þremur árum, meðal annars vegna svokallaðra veiðmanna þegar kemur að eiginhandaráritum sem reyna að græða á því að selja áritaða muni áfram.

Arteta tjáði sig um málið og lagði áherslu á að hann reyni yfirleitt að gefa sér tíma fyrir stuðningsmenn. „Ég reyni alltaf að vera mjög kurteis. Ég elska að skrifa á muni og taka myndir þegar það er hægt. Það er hluti af okkar hlutverki,“ sagði hann.

Hann bætti þó við að öryggi skipti máli. „Það eru ákveðin atriði sem við verðum að virða varðandi öryggi. Sérstaklega þegar sumir gera þetta ekki af réttum ástæðum.“

Arteta nefndi einnig fyrra atvik þar sem eiginkona hans var til staðar og fjölmiðlaumfjöllun að hans mati ósanngjörn.

„Það eru líka margir frábærir stuðningsmenn sem vilja einfaldlega eiga falleg samskipti. Ég er alltaf glaður að gera það. En stundum eru aðstæður þannig að það er ekki hægt.“

Að lokum sagði hann. „Við þurfum líka vernd. Annars verður maður berskjaldaður, fastur í bílnum og líður ekki vel. En svona er þetta, maður tekur þessu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Í gær

Southgate vill bara ræða við stóru strákana

Southgate vill bara ræða við stóru strákana
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims