fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

„Gott fyrir hann að fá þjálfara sem hefur trú á honum og treystir honum til að spila“

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Dagur Þorsteinsson gekk á dögunum í raðir Brann á láni frá Hertha Berlin. Faðir hans, landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson, hefur fulla trú á að hann muni standa sig í Noregi.

Jón Dagur hefur víðtæka reynslu af erlendum fótbolta. Áður hefur hann leikið í Englandi, Danmörku og Belgíu, meðal annars með Fulham, Vendsyssel, AGF og OH Leuven. Hann kom til Berlínar fyrir síðustu leiktíð en hefur ekki tekist að festa sig í sessi í liðinu.

Þorsteinn ræddi við 433.is í tilefni að því að hann var að opinbera hóp kvennalandsliðsins fyrir komandi leiki en var spurður að því hvernig honum litist á skipti sonarins einnig.

video
play-sharp-fill

„Þau leggjast vel í mig. Ég held það sé gott fyrir hann að fá þjálfara sem hefur trú á honum og treystir honum til að spila,“ sagði Þorsteinn, en Freyr Alexandersson er auðvitað þjálfari Brann.

„Ég er alveg sannfærður um að hann eigi eftir að gera vel þarna. Svo er það eins og alltaf undir þér sjálfum komið hversu mikið þú spilar og hversu vel þú stendur þig. Hann nýtur vonandi þessa tíma og fær tækifæri til að gera eitthvað.“

Brann komst í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar og tekur á móti Bologna í fyrri leik liðanna á fimmtudag. Jón Dagur er löglegur í þeim leik, sem og Kristall Máni Ingason, sem einnig kom til Brann á dögunum. Fyrir hjá félaginu eru Íslendingarnir Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson.

Meira
Þorsteinn vill að landsliðið geri þjóðina stolta gegn bestu liðum heims

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Í gær

Southgate vill bara ræða við stóru strákana

Southgate vill bara ræða við stóru strákana
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
Hide picture