
Liverpool, Chelsea og Tottenham horfa öll til Lloyd Kelly hjá Juventus ef marka má fréttir frá Ítalíu.
Hinn 27 ára gamli Kelly gekk í raðir Juventus frá Newcastle fyrir ári síðan og er fastamaður í liðinu hjá ítalska risanum.
Hefur hann heillað áðurnefnd stórlið, sem kanna öll möguleikann á því að fá hann í sumar til að styrkja varnarlínu sína.
Kelly er samningsbundinn Juventus til ársins 2029 og ætti félagið því að vera í sterkri stöðu í hugsanlegum viðræðum næsta sumar.
Auk Newcastle og Juventus hefur Englendingurinn spilað fyrir Bournemouth og Bristol City á ferlinum.