fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ólafur ræðir ítarlega um fyrstu mánuðina í Laugardal – „Þetta hefur verið gríðarlega skemmtilegt og fjölbreytt“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. febrúar 2026 15:25

Ólafur Kristjánsson. DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Kristjánsson, einn reynslumesti fótboltaþjálfari okkar Íslendinga, var ráðinn til KSÍ í haust eftir að hafa síðast stýrt kvennaliði Þróttar. Hann er með marga hatta í Laugardalnum.

Ólafur, sem þjálfaði um árabil í efstu deild karla hér heima og einnig í Danmörku, er aðstoðarþjálfari Þorsteins Halldórssonar hjá kvennalandsliðinu. Leiðir hann þá stefnumótun yngri landsliða kvenna, auk þess sem hann og Lúðvík Gunnarsson tóku saman við U-21 árs landsliði karla í byrjun árs. En hvernig hafa fyrstu mánuðirnir í Laugardalnum verið?

video
play-sharp-fill

„Þeir hafa verið skemmtilegir. Þetta er skemmtilegur vinnustaður, gott fólk. Það er mikil samstaða og orka og gaman fyrir gamla menn eins og mig og Steina að vinna með ungu og fersku fólki,“ grínaðist Ólafur, og á þá við Þorstein landsliðsþjálfara.

„Ég var ansi upptekinn fyrir áramót. Ég þurfti að setja mig inn í allt hérna, svo var U-21 árs verkefni, leikirnir við Norður-Íra og verkefni með U-19 kvenna í Portúgal. Svo voru ein eða tvær ráðstefnur. Þetta hefur verið gríðarlega skemmtilegt og fjölbreytt. Það er ekki annað hægt en að hlakka til þess sem er framundan.“

Ólafur var jafnframt spurður út í daglegt amstur í starfi hjá KSÍ.

„Það er hægt að kalla þetta einhverjum nöfnum en mitt hlutverk varðandi yngri liðin er að veita þeim aðhald og aðstoð, styðja þjálfarana í því, að þau hafi sem bestar forsendur til að verða eins góðir þjálfarar og mögulegt er. Ég tek við þau samtöl um það sem þau gera á æfingavellinum, val á hópum og liðum. Það er hægt að segja að ég sé að tappa af minni reynslu til þeirra, sem er skemmtilegt.“

Ólafur ræðir nánar um U-21 árs-starfið, komandi leiki kvennalandsliðsins og fleira í spilaranum hér ofar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
Hide picture