fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ratcliffe hringdi í Glazer fjölskylduna og baðst afsökunar

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 14. febrúar 2026 18:30

Ratcliffe fyrir miðju.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sir Jim Ratcliffe, meðeigandi Manchester United, hefur beðist afsökunar á umdeildum ummælum sínum um innflytjendamál sem vöktu mikla reiði og settu félagið í óþægilega stöðu.

Samkvæmt enskum blöðum hafði Ratcliffe samband við Glazer-fjölskylduna, sem eru meðeigendur hans að félaginu, til að útskýra ummælin og biðjast afsökunar á umræðunni sem skapaðist í kjölfarið.

Ratcliffe hafði áður haldið því fram í viðtali að innflytjendur hefðu „numið Bretland“, sem vakti hörð viðbrögð.

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, kallaði eftir afsökunarbeiðni frá Ratcliffe og varð hann við því. Enska knattspyrnusambandið er nú sagt skoða málið og meta hvort ástæða sé til frekari rannsóknar.

Ummælin eru sögð hafa skaðað ímynd Manchester United verulega. Glazer-fjölskyldan hefur áhyggjur af því hvaða áhrif málið gæti haft á samband félagsins við styrktaraðila.

Einnig eru uppi áhyggjur um að umræðan geti haft áhrif á áform félagsins um byggingu nýs leikvangs. Málið hefur því haft víðtæk áhrif utan vallar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs