

Marylou Sidibe, eiginkona knattspyrnumannsins Moussa Sissoko sem hefur spilað fyrir lið eins og Tottenham og Newcastle, birti myndband úr ræktinni sem vakti gríðarlega athygli.
Sidibe er vinsæl á samfélagsmiðlum og hefur áður birt myndbönd úr ræktinni, en sjálf er hún þjálfari. Í þetta sinn ætlaði hún að taka sig upp hlaupa á hlaupabretti en það fór ekki betur en svo að hún flaug á hausinn um leið og hún steig á brettið.
Sidibe meiddist ekki alvarlega og sá greinilega spaugilegu hliðina á atvikinu þar sem hún birti það sjálf á Instagram.
Það sem vekur athygli fólks sem tjáir sig í athugasemdakerfinu undir myndbandi Sidibe er þó að enginn virðist hafa komið henni til bjargar. Margir furða sig á þessu, en sjón er sögu ríkari og má sjá myndbandið hér neðar.
Mais attend 🤣🤣😭😭
🎥marylou.sidibe pic.twitter.com/3Ur9ccsCew— Varan 🐊 2.0🇨🇮 (@LucaVaran) March 15, 2025