fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fékk væna sekt fyrir að keyra yfir á rauðu – Vildi ekki gefa upp hver var að keyra

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enska knattspyrnustjarnan Jack Grealish hefur verið gert að greiða samtals um 1.000 pund í sekt og kostnað eftir umferðarlagabrot í Liverpool.

Grealish, sem er 30 ára og leikur á láni hjá Everton frá Manchester City, var kærður af lögreglunni í Merseyside eftir atvik í september á síðasta ári.

Myndavélar náðu þá sportbíl hans, Lamborghini að verðmæti um 210.000 pund, aka yfir á rauðu ljósi skammt frá miðborg Liverpool seint um kvöld.

Samkvæmt gögnum málsins tókst Grealish ekki að upplýsa lögreglu um hvort hann eða annar aðili hefði verið við stýrið þegar brotið var framið. Dómari við héraðsdóm í Liverpool dæmdi hann í sex refsipunkta á ökuskírteinið og til að greiða sekt, málskostnað og gjöld upp á samtals 1.044 pund.

Atvikið átti sér stað um klukkan 23:30 þann 12. september, kvöldið áður en Grealish spilaði með Everton gegn sínu gamla félagi Aston Villa í markalausu jafntefli.

Þá hefur Grealish staðfest að tímabili hans 2025/26 sé lokið vegna meiðsla. Hann birti mynd af sér á sjúkrahúsi eftir aðgerð á álagsbroti í fæti og sagðist svekktur að enda tímabilið með þessum hætti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs