fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

United og Chelsea gætu farið til Norður-Noregs og sótt leikmann

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea og Manchester United eru sögð hafa áhuga á því að fá til sín ungstirnið Abubacarr Sedi Kinteh frá norska félaginu Tromsö.

Þessi 19 ára gamli miðvörður gekk til liðs við Tromsö í mars á síðasta ári eftir að hafa heillað á reynslu frá Academy Mawade Wade. Hann skrifaði í kjölfarið undir samning til ársins 2029, en frammistaða hans hefur þegar vakið athygli stærri félaga.

Kinteh, sem er örvfættur og þekktur fyrir mikinn hraða, lék 22 leiki á sínu fyrsta tímabili og skoraði eitt mark. Hann hefur einnig þreytt frumraun sína fyrir landslið Gambíu.

Samkvæmt Daily Mail eru bæði Chelsea og Manchester United áhugasöm um að tryggja sér þjónustu varnarmannsins. Chelsea er sagt sérstaklega áhugasamt, ekki síst eftir að hafa misst af Jeremy Jacquet til Liverpool.

Tromsö vill halda í leikmanninn en ljóst er að áhuginn frá ensku stórliðunum gæti sett pressu á norska félagið í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs