fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Var að kaupa þrjár nýjar fasteignir – Allt í útleigu og safnið metið á tæpan 1,5 milljarð

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 11:00

Gareth Southgate, fyrrum landsliðsþjálfari Englands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sir Gareth Southgate, fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands, hefur byggt upp umtalsvert fasteignasafn samhliða knattspyrnuferli sínum.

Samkvæmt nýjum gögnum hefur Southgate fjárfest í fasteignum að verðmæti um 8,7 milljónir punda í gegnum útleigufélag sitt. Á síðasta ári bætti hann þremur eignum við safnið.

Fjárfestingafélag hans, MAS Investment Holdings, á nú alls 16 fasteignir í Manchester, London og Birmingham. Félagið, sem sérhæfir sig í kaupum og sölu fasteigna, er rekið af Southgate og eiginkonu hans Alison.

Ný skjöl sýna einnig að félagið hefur tekið lán upp á um 2,9 milljónir punda með veði í eignunum. Meðal nýjustu kaupa eru þrjár íbúðir í nýju íbúðahverfi í Birmingham, sem kostuðu á bilinu 367 til 450 þúsund pund hver.

Southgate lét af störfum sem landsliðsþjálfari eftir tap Englands gegn Spáni í úrslitaleik EM 2024. Hann stýrði liðinu í 102 leikjum á nær átta árum og kallaði starfið heiður lífs síns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Í gær

Southgate vill bara ræða við stóru strákana

Southgate vill bara ræða við stóru strákana
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims