fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ætlar sér að vinna ensku deildina en veit ekki með hvaða félagi

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mauricio Pochettino segist fullviss um að hann geti unnið ensku úrvalsdeildina sem þjálfari í framtíðinni, þó óljóst sé með hvaða félagi það verði. Hann þjálfar landslið Bandaríkjanna í dag.

Argentínski stjórinn ræddi markmið sín í hlaðvarpinu The High Performance Podcast og lagði áherslu á mikilvægi trúar á eigin getu. „Já, ég trúi því að ég muni vinna úrvalsdeildina,“ sagði Pochettino.

„Ef þú trúir ekki, ef þú hefur ekki hungur, ástríðu og baráttuanda, þá er erfitt að ná árangri.“

Hann sagði Meistaradeildina vera draum, líkt og heimsmeistaramótið, en að enski fótboltinn væri honum sérstaklega kær. Hann hefur stýrt Chelsea, Tottenham og Southampton á Englandi.

„Við elskum enskan fótbolta; fótboltinn fæddist hér. Við vorum heppnir að eyða miklum tíma á Wembley, sem er táknrænn völlur fyrir okkur.“

Pochettino segir þjálfarateymi sitt á góðum stað. „Við erum á okkar besta augnabliki sem þjálfarar. Við erum enn ungir og með orku.“

Hann telur sig enn geta bætt sig, en að teymið búi yfir þekkingu og jafnvægi til að færa hvaða félagi sem er jákvæða hluti.

„Við ætlum að reyna. Því miður veit ég ekki með hvaða félagi,“ bætti hann við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug