
Arsenal hefur áhuga á belgíska sóknarmanninum Mika Godts, sem hefur verið einn af bestu leikmönnum Ajax á leiktíðinni.
Hinn 20 ára gamli Godts hefur skorað 10 mörk og lagt upp 9 í öllum keppnum og vakið athygli stærstu félaga Evrópu, einnig Barcelona.
Samkvæmt hollenskum miðlum hefur Arsenal þegar sent fyrirspurn til Ajax vegna leikmannsins.
Godts hefur verið líkt við Eden Hazard, fyrrverandi leikmann Chelsea og Real Madrid, ekki síst vegna sprengikrafts, hraða og hversu góður hann er einn á einn.
Telur Mikel Arteta það geta hjálpað mikið þegar kemur að því að brjóta niður varnir, sem Skytturnar hafa stundum átt erfitt með á leiktíðinni.
Talið er að Ajax sé tilbúið að selja Godts fyrir 15–20 milljónir evra og gæti Arsenal gert tilboð í sumar.