fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sjúkraþjálfari sendur í leyfi – Bókaði ítrekað hótelherbergi fyrir aðra menn svo þeir gætu haldið framhjá eiginkonum sínum

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 6. febrúar 2026 10:30

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikmenn Rangers eru sagðir hafa misnotað hótelherbergi sem bókuð voru fyrir sjúkraþjálfun og endurhæfingu til að hitta konur og stunda með þeim kynlíf, samkvæmt heimildum skoskra miðla. Málið hefur vakið mikla athygli innan félagsins.

Samkvæmt fréttum hefur starfsmaður í sjúkraþjálfarateymi félagsins verið settur í tímabundið leyfi á meðan málið er skoðað. Talið er að atvikin hafi átt sér stað á hótelum í Englandi þar sem herbergi voru bókuð í tengslum við meðferð og endurhæfingu leikmanna.

Málið komst upp þegar eiginkona eins leikmanns komst að meintu framhjáhaldi. Hún á að hafa brugðist reið við og haft samband við yfirstjórn félagsins til að láta vita. Í kjölfarið rataði málið til læknateymis Rangers.

Ekki liggur fyrir hve margir leikmenn tengjast málinu né hversu lengi fyrirkomulagið hafi verið við lýði. Heimildir herma að um fámennan hóp hafi verið að ræða.

Samkvæmt heimildarmanni hafi málið, sem kom upp skömmu fyrir jól, valdið miklu fjaðrafoki innan félagsins. Herbergin hafi verið bókuð undir nafni sjúkraþjálfunardeildarinnar, en sumir leikmenn nýtt sér það í öðrum tilgangi.

Rangers hefur ekki gefið út opinbera yfirlýsingu um málið enn sem komið er. Málið er talið í innri skoðun hjá félaginu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug