

Gianluigi Buffon, einn besti markvörður knattspyrnusögunnar, var á sínum tíma í miðju miklu fjölmiðlafári vegna einkalífs síns. Ítalski goðsagnamarkvörðurinn, sem varð 48 ára nýverið, átti glæsilegan feril með Juventus þar sem hann lék í 17 ár og vann ítölsku deildina tíu sinnum.
Utan vallar vakti samband hans við tékknesku fyrirsætuna Alena Seredova mikla athygli. Hún var ungfrú Tékkland 1998 og komst í fimm efstu sætin í Miss World sama ár. Þau byrjuðu saman árið 2005, giftu sig í Prag árið 2011 og eignuðust tvö börn. Hjónabandið endaði þó árið 2014 þegar Buffon tilkynnti um skilnað.
Síðar kom hann opinberlega fram með ítölsku íþróttafréttakonunni Ilaria D’Amico, sem starfaði lengi hjá Sky Sports Italia. Ítalskir miðlar fullyrtu að samband þeirra hefði hafist áður en hjónaband Buffon og Seredova lauk, sem vakti mikla umræðu á sínum tíma.
Seredova hefur síðar lýst því hvernig hún upplifði tímabilið. Hún sagðist hafa mætt á leiki til að styðja eiginmann sinn á meðan aðrir virtust vita meira um stöðuna en hún sjálf. Hún sagðist hafa hætt að mæta á leiki þegar orðrómurinn fór á kreik og að erfitt hefði verið að fá fréttir af hjónabandinu í gegnum fjölmiðla.
Buffon og D’Amico eignuðust síðar barn saman og hafa verið par um árabil. Slúðurmiðlar á Ítalíu greindu jafnframt frá því að nágrannar hefðu kvartað yfir hávaða frá heimili parsins, sem vakti athygli í blöðum. Lætin hefðu komið úr svefnherberginu og þau verið eins og kanínur.
Þrátt fyrir umræðu um einkalífið stendur íþróttaferill Buffon áfram upp úr. Hann á 176 landsleiki og er leikjahæsti markvörður sögunnar á alþjóðavettvangi, auk þess að hafa oftast borið fyrirliðaband ítalska landsliðsins. Hann er almennt talinn einn fremsti markvörður allra tíma.