

Arsenal hafði fullkomið tækifæri til að koma Kai Havertz rólega aftur inn í liðið þegar Kairat Almaty heimsótti Emirates í gær. Samkvæmt Isaan Khan hjá Daily Mail var leikurinn nánast sniðinn að einum manni, Havertz.
Þjóðverjinn var að byrja sinn fyrsta leik eftir fimm mánaða fjarveru vegna hnémeiðsla og markmiðið var einfalt, stígandi endurkoma. Sú áætlun heppnaðist fullkomlega. Havertz skoraði mark og lagði upp annað, og stjórnaði miðjunni með yfirvegun og gæðum sem Kairat átti einfaldlega engin svör við.
Khan bendir sérstaklega á augljósan gæðamun á Havertz og Viktor Gyökeres. „Sá sænski hefði getað og átt að skora þrennu í fyrri hálfleik en klúðraði hverju færinu á fætur öðru. Á sama tíma lét Havertz knöttinn ganga af þolinmæði og greind,“ segir Khan.
Þó Havertz sé ekki enn í fullu leikformi, segir Khan að þegar hann nær því verði staða fyrsti kostur í framlínu Arsenal. „Mikel Arteta hefur nú skýra vísbendingu um hver á að leiða sóknina þegar alvaran tekur við,“ Khan.
„Leikurinn gegn Kairat var kannski ekki stærsti prófsteinn tímabilsins en skilaboðin voru skýr.“