

Það var slegið á létta strengi í hlaðvarpinu Dr. Football fyrir helgi, þar sem Eiður Smári Guðjohnsen var á meðal gesta.
Eiður hóf glæstan atvinnumannaferil sinn með PSV í Hollandi og vildi þáttastjórnandinn Hjörvar Hafliðason meina að Eiður hafi hrundið af stað ákveðinni tískubylgju í landinu.
„Þú ert „Style icon“ í Hollandi,“ sagði Hjörvar við Eið í gamansömum tón og varpaði mynd af skeggi ungs Eiðs Smára á skjáinn. Þar skartar hann svokölluðu „goatee.“
Máli sínu til stuðnings birti Hjörvar myndir af mönnum eins og Bart Verbruggen, Virgil van Dijk, Xavi Simons, Jurrien Timber, Nathan Ake, Ryan Gravenberch, Donyell Malen, hollenskum knattspyrnumönnum sem höfðu fetað í fótspor Eiðs, að hans mati.
„Þessi mynd er náttúrulega hræðileg,“ sagði Eiður Smári um þessa mynd af sjálfum sér.
Þetta má sjá hér að neðan.
View this post on Instagram