
Michael Carrick er talinn í sterkri stöðu í baráttunni um að verða nýr bráðabirgðastjóri Manchester United. Félagið ræddi bæði við Carrick og fyrrverandi stjóra sinn Ole Gunnar Solskjær í síðustu viku, en helstu miðlar greina nú frá því að Carrick sé líklegri, þó fréttir í síðustu viku hafi verið á þann veg að Solskjær yrði líklega ráðinn.
Carrick tók tímabundið við liðinu í nóvember 2021 eftir að Solskjær var látinn fara og stýrði þá liðinu í þrjá leiki. Í kjölfarið var hann í tæp þrjú ár við stjórnvölinn hjá Middlesbrough í ensku B-deildinni. Solskjær var um tíma talinn líklegastur samkvæmt veðbönkum, en áhuginn á honum hefur dvínað eftir að United ræddi formlega við Carrick á fimmtudag.
Forráðamenn United, þar á meðal yfirmaður íþróttamála, Jason Wilcox og framkvæmdastjórinn Omar Berrada, eru nú að meta næstu skref. Aðilar innan félagsins eig að vera óánægðir með þann hávaða sem myndaðist fljótt í kringum mögulega endurkomu Solskjær, sem aðeins hefur stýrt einu liði síðustu fjögur ár.
Darren Fletcher hefur stýrt United í síðustu tveimur leikjum en slæmt gengi hefur haldið áfram. Liðið gerði jafntefli við Burnley í síðustu viku og féll svo úr leik í enska bikarnum af hendi Brighton í gær.