fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Knattspyrnumaður slasaðist illa í brunanum í Sviss

Helgi Fannar Sigurðsson
Laugardaginn 3. janúar 2026 11:00

Tahirys Dos Santos.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungur knattspyrnumaður Metz, Tahirys Dos Santos, liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsi eftir skelfilegan bruna á skemmtistað í Crans-Montana í Sviss á gamlárskvöld. Eldurinn kostaði 47 manns lífið og yfir 115 slösuðust.

Metz staðfesti í tilkynningu að Dos Santos, sem er 19 ára bakvörður, hafi hlotið alvarleg brunasár og verið fluttur með þyrlu til Þýskalands þar sem hann er nú í meðferð á sérhæfðri brunasáradeild. Hann var fyrst fluttur á sjúkrahús í Sion áður en honum var komið til Stuttgart.

„Félagið er í áfalli og stendur þétt við bakið á Tahirys og fjölskyldu hans á þessum erfiðu tímum,“ sagði í yfirlýsingu Metz, sem vinnur nú að því að flytja leikmanninn nær heimabæ hans í Frakklandi þegar aðstæður leyfa.

Umboðsmaður hans, Christophe Hutteau, sagði að jákvætt væri að Dos Santos hafi ekki þurft öndunarvél, þrátt fyrir að ástand hans sé mjög alvarlegt. „Það er allt of snemmt að draga ályktanir,“ sagði hann.

Dos Santos hefur spilað tíu leiki fyrir varalið Metz á tímabilinu og var nýverið í leikmannahópi aðalliðsins í Franska bikarnum. Hann var í fríi þegar slysið átti sér stað.

Metz hefur beðið fjölmiðla og almenning um að virða friðhelgi leikmannsins og fjölskyldu hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid
433Sport
Í gær

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára
433Sport
Í gær

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Í gær

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum