Alan Shearer, markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, er alls ekki hrifinn af því að Ange Postecoglou hafi verið látinn fara frá Tottenham.
Postecoglou var rekinn frá enska liðinu í gær en það var staðfest stuttu eftir að liðinu tókst að vinna Evrópudeildina.
Gengi Tottenham í efstu deild í vetur var hins vegar hörmulegt en liðið hafnaði í 17. sæti sem er alls ekki boðlegt.
Þrátt fyrir það tryggði Postecoglou liðinu Meistaradeildarsæti með sigri í Evrópudeild sem gerir mikið fyrir félagið næsta vetur.
,,Þetta er svo heimskur leikur!!!“ skrifaði Shearer á Twitter síðu sinni og kvótar þar í færslu Tottenham þar sem brottreksturinn var tilkynntur.
What a stupid game football is!!!! https://t.co/FzR21Aa3iC
— Alan Shearer (@alanshearer) June 6, 2025