Manchester United hefur skellt 70 milljóna punda verðmiða á Alejandro Garnacho sem er til sölu í sumar.
Chelsea er samkvæmt enskum miðlum að skoða það að kaupa Garnacho en félagið gerði tilraun til þess í janúar.
Þá vildi Chelsea borga 42,5 milljónir punda fyrir kappann en það er ekki sá verðmiði sem United sættir sig við.
Garnacho fór í stríð við Ruben Amorim undir lok tímabils þegar hann var settur á bekkinn í úrslitum Evrópudeildarinnar.
Garnacho er því til sölu og United vonast til þess að losna við hann sem fyrst.