Nottingham Forest hefur hafnað 45 milljóna punda tilboði frá Newcastle í Anthony Elanga kantmann liðsins.
Elanga er frá Svíþjóð en hann var áður hjá Manchester United en þar sem hann náði ekki flugi.
Elanga er 23 ára gamall og eftir tvö góð ár hjá Forest vill Newcastle fá hann.
Forest vill hins vegar fá meira en 45 milljónir punda en Sky Sports segir frá tilboðinu sem lagt hefur verið fram.
Óvíst er hvort Newcastle muni leggja fram annað tilboð í Elanga en Newcastle vill reyna að styrkja liðið sitt.