Það er í forgangi hjá Manchester United að selja Jadon Sancho frekar en að lána hann aftur.
Sancho hefur verið á láni hjá Dortmund og Chelsea síðustu átján mánuði.
Sancho gat farið til Chelsea í sumar en vildi ekki taka á sig launalækkun á kjörum sínum hjá Manchester United.
Sancho er sagður þéna 250 þúsund pund á viku hjá United en Napoli er nú farið að sýna honum áhuga.
Fabrizio Romano segir að launapakkinn sé eitthvað sem er til skoðunar en samræður eru á fyrsta stigi.
Fleiri félög eru sögð skoða það að kaupa Sancho en hann hefur verið orðaður við lið í Sádí Arabíu.