Dregið hefur verið í aðra umferð forkeppni Meistaradeildar, þar sem Breiðablik á möguleika á að vera.
Takist Breiðabliki að slá út Egnatia frá Albaníu í 1. umferðinni mun liðið mæta pólsku meisturunum Lech Poznan. Þess má geta að Gísli Gottskálk Þórðarson er þar á mála.
Leikirnir fara fram 22. eða 23. júlí og 29. eða 30. júlí.
Í hádeginu verður dregið í 2. umferð Sambandsdeildarinnar. Þar eru bikarmeistarar KA í pottinum og fá Víkingur og Valur einnig að vita hverjir andstæðingar sínir verða, komast liðin í gegnum 1. umferðina.