Napoli er á eftir Jadon Sancho hjá Manchester United marka má ítalska miðla í dag.
Napoli hampaði Ítalíumeistaratitlinum í vor og ætlar sér stóra hluti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Félagið hefur tryggt sér Kevin De Bruyne frá Manchester City og er nú sagt snúa sér að Sancho.
Sancho er kominn aftur til United eftir lánsdvöl hjá Chelsea, sem greiddi 5 milljónir punda til að þurfa ekki að kaupa hann endanlega samkvæmt samningi.
Kantmaðurinn er þó ekki inni í myndinni hjá United, en kappinn hefur aldrei staðið undir væntingum frá því félagið keypti hann á 73 milljónir punda fyrir fjórum árum.