Það kom upp afar umdeilt atvik í Víkinni í 3-2 sigri heimamanna á KR í Bestu deild karla í gær. Margir eru á því að Víkingur hefði átt að spila síðustu klukkustund leiksins manni færri.
Það var 1-0 fyrir heimamenn þegar Gabríel Hrannar Eyjólfsson átti skot að marki þeirra sem Karl Friðleifur Gunnarsson varði með höndunum. Fékk hann dæmt á sig víti og gult spjald, ekki rautt þar sem það var metið sem svo að Ingvar Jónsson markvörður hefði getað varið skotið fyrir aftan hann.
„Það horfir bara þannig við mér að þetta er bara víti og rautt. Þeirra útskýring er sú að Ingvar Jónsson hafi verið fyrir aftan Karl og hefði getað varið skotið og þá hafi þetta bara verið gult. Þá er Karl ekki síðasti maður eða eitthvað svoleiðis,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson meðal annars um málið við SÝN eftir leik.
Karl Friðleifur átti þarna eftir að skora markið sem kom Víkingi yfir á ný, en sem fyrr segir vann liðið að lokum 3-2 sigur. Þess má geta að honum var kippt af velli í hálfleik.
Mikil umræða skapaðist um atvikið á meðal knattspyrnuáhugamanna á X og flestir á því að Karl Friðleifur hefði átt að fjúka út af. Hér að neðan má sjá brot af umræðunni.
Víti og gult, tölum saman, hvernig?
— Magnus Thorir (@MagnusThorir) June 16, 2025
Bíddu ha? Ver boltann á línu og ekki rautt? #fotboltinet
— Guðmundur Auðun (@GummiAudun) June 16, 2025
Sem dómari sjálfur þá verð ég að viðurkenna að bjarga marki með höndum sem utileikmaður að þá er það alltaf rautt. Skrítin ákvörðun hjá Johann Inga sem mér finnst almennt frabær dómari #fotboltinet
— Magnus Bodvarsson (@MBodvarsson) June 16, 2025
Hvernig er þetta ekki rautt spjald? Hvaða innilega þvæla er það?
— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) June 16, 2025
Sé að við erum byrjaðir að gefa Víkingum leiki strax í júní. Kalli á ekki að vera inn á 🥴
— Hilmar Jökull (@HilmarJokull) June 16, 2025
Levelið á dómgæslunni frá öllum hlutaðeigandi í Víkinni er með því lægsta sem ég hef séð. Magnið af röngum og afdrifaríkum ákvörðunum er slíkt að ég hef sjaldan séð annað eins. Það hljóta allir að gera meiri kröfur en þetta #fotboltinet #bestadeildin
— Krissi Aðalsteins (@KrissiCoach) June 16, 2025