Manchester City er búið að semja við gríðarlega efnilegan leikmann sem var á mála hjá Paris Saint-Germain í Frakklandi.
Þetta fullyrðir franski miðillinn RMC Sport en strákur að nafni Mahamadou Sangare hefur gert fimm ára samning á Etihad.
Sangare er sóknarmaður og er aðeins 18 ára gamall en hann vildi ekki skrifa undir atvinnumannasamning við PSG.
Framherjinn var stórkostlegur í vetur fyrir U19 lið PSG en hann skoraði 42 mörk í 46 leikjum.
Þessar fréttir koma stuttu eftir að City tryggði sér þjónustu Sverre Nypan sem er undrabarn frá Noregi.