Eins og margir vita er Ange Postecoglou ekki lengur stjóri Tottenham en hann fékk sparkið á dögunum og er Thomas Frank tekinn við.
Frank var staðfestur hjá Tottenham á fimmtudag en stuttu eftir þá ráðningu birtist færsla frá varnarmanninum Cristian Romero á samskiptamiðla.
Romero virtist þar skjóta á Tottenham og stefnu félagsins en hann segir að Ange hafi þurft að þola mikið á tíma sínum sem stjóri liðsins undanfarin tvö ár.
Óvíst er hvort Romero sé að tala um klúbbinn eða þá fjölmiðla en hann vann Evrópudeildina með liðinu í vetur og fékk mikið lof fyrir það afrek.
Romero er mögulega á förum frá Tottenham í sumar og ef hann er að skjóta á eigin klúbb með þessari færslu þá ýtir það undir þær sögusagnir.
,,Takk fyrir þessu tvö frábæru tímabil. Þú ert magnaður þjálfari en fyrir ofan allt þá ertu frábær manneskja sem á skilið allt það besta,“ sagði Romero.
,,Alveg frá fyrsta degi þá komstu í gegnum allar þessar hindranir sem eru til staðar og verða alltaf til staðar.“
,,Ég óska þér alls hins besta því það er það sem þú átt skilið, takk fyrir allt saman.“