
UEFA hefur tilkynnt að EM kvenna 2029 verður haldið í Þýskalandi.
Valið stóð á milli Þýskalands, Póllands og sameinaðst útboðs Danmerkur og Svíþjóðar.
Spilað verður í Köln, Dortmund, Dusseldorf, Frankfurt, Hanover, Leipzig, Munchen og Wolfsburg.
Mótið var síðast haldið í Þýskalandi árið 2001, en þá vann Þýskaland sigur á Svíþjóð í úrslitaleik mótsins.
Ísland hefur farið á fimm Evrópumót í röð og vonandi verður mótið í Þýskalandi það sjötta.