

Þorlákur Árnason, sem hætti með karlalið ÍBV á dögunum, var gestur Guðmundar Benediktssonar í Big Ben á Sýn Sport í gærkvöldi og sagði áhugaverða sögu frá tíma sínum hjá Brommapojkarna í Svíþjóð.
Þar var Þorlákur akademíustjóri og sá margar stjörnur fara í gegn, til að mynda leikmenn sem spila í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Hann vakti athygli á því að foreldrar Viktor Gyokeres hjá Arsenal og Lucas Bergvall hjá Tottenham hafi verið til fyrirmyndar er hann vann með þeim í Svíþjóð.
„Fyrir svona sturlaða foreldra er gott að vita að foreldrar Lucas Bergvall og Viktor Gyokeres að þetta var rólegasta fólið í Brommapojkarna,“ sagði Þorlákur
„Ég var endalaust á fundum með foreldrum sem voru að reyna að koma börnunum sínum í stórlið í Evrópu en þetta var þvílíkt toppfólk.“
Það voru þó ekki allir sem höguðu sér svo vel, faðir Dejan Kulusevski, sem spilar með Tottenham í dag, vildi ólmur koma sínum manni til Ítalíu.
„Hann fór illa með mig. Hann vildi fara til Atalanta en við höfnuðum tilboðinu. Þá flutti pabbi hans bara með hann út,“ sagði Þorlákur.
„Það endaði í réttarhöldum og við fengum pening fyrir hann að lokum. Hann er auðvitað frábær leikmaður líka.“