
Hundruð stuðningsmanna Manchester United misstu af upphafi leiksins gegn West Ham í gær þar sem miklar tafir urðu við hliðin á Old Trafford. Margir stuðningsmenn reiddust yfir biðröðum og almennri óreiðu við innganga vallarins.
Að sögn The Sun voru tafirnar að hluta til vegna öryggiseftirlits sem gekk hægt fyrir sig, auk þess sem félagið hefur nýlega fært sig yfir stafræna miða sem þarf að hlaða niður og skanna við hliðin.

United hafði varað stuðningsmenn við og hvatt þá til að hlaða niður miðunum fyrir fram, en samt sem áður urðu miklar biðraðir. „Þetta er það versta sem ég hef séð,“ er haft eftir einum stuðningsmanni.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem vandamál koma upp. Stuðningsmenn lentu í svipuðum erfiðleikum fyrir opnunarleik tímabilsins gegn Arsenal og einnig eftir tapið gegn Everton á mánudaginn í síðustu viku.