

Cristiano Ronaldo hefur víkkað út viðskiptaveldi sitt með því að fjárfesta í Perplexity, gervigreindarvettvangi sem keppir við ChatGPT frá OpenAI.
Samstarfið var opinberað á samfélagsmiðlum þar sem Ronaldo birti kynningarmyndband og greindi frá þátttöku sinni.
„Forvitni er forsenda þess að vera frábær. Þú vinnur þegar þú heldur áfram að spyrja nýrra spurninga á hverjum degi. Þess vegna er ég stoltur af því að tilkynna fjárfestingu mína í Perplexity,“ sagði Ronaldo.
Perplexity var stofnað árið 2022 og er svokallað „answer engine“ sem byggir á gervigreind og leyfir notendum að spyrja hvaða spurninga sem er og fá nákvæm, heimildarvottuð svör.
Ronaldo, sem er 40 ára, vísaði einnig til fyrirtækisins í ræðu sem hann hélt á verðlaunahátíð í Portúgal í október.
Fjárfestingin er enn eitt dæmið um viðskiptaverkefni Portúgalans samhliða áframhaldandi ferli hans með Al Nassr í Sádi-Arabíu.