
Það fór öfugt ofan í marga að hinn umdeildi Bandaríkjaforseti Donald Trump skildi hljóta Friðarverðlaun FIFA er dregið var í riðla fyrir HM næsta sumar vestan hafs í dag.
Gianni Infantino, forseti FIFA, setti verðlaunin á laggirnar í fyrsta sinn nú og eru margir á því að það hafi bara verið til að geta afhent Trump þau.
Meira
Svona verða riðlarnir á HM næsta sumar – Endurtekinn opnunarleikur frá 2010
Erlendir miðlar fjalla margir um ósætti knattspyrnuáhugamanna við þetta og taka dæmi um nokkur ummæli frá netverjum.
„Það er móðgun við hvern stuðningsmann knattspyrnu sem trúir á jafnrétti og mannréttindi að FIFA veiti Donald Trump þessi verðlaun,“ skrifar einn til að mynda.
„Fótbolti er brandari. Þau bjuggu til þessi verðlaun til að gefa Trump þau. Ég get ekki hætt að hlæja,“ skrifar annar og fleiri taka til máls.
„Það er ógeðslegt að FIFA og Gianni Infantino láti dráttinn snúast um Donald Trump.“
BBC sýndi frá drættinum og sjónvarpsmaðurinn Jonathan Pearce skaut einnig á verðlaunin og FIFA. „Ég velti fyrir mér hver hlýtur friðarverðlaun FIFA næst, ef þau verða enn til,“ sagði hann.