

Stefán Pálsson, sagnfræðingur og knattspyrnuáhugamaður með meiru, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni á 433.is.
Færeyingar eru að taka upp VAR í einum leik í umferð í efstu deild. Því hefur lengi verið velt upp hvort Íslendingar eigi að gera slíkt hið sama. Stefán bendir hins vegar á að koma VAR í heimsfótboltann hafi ekki verið til að fækka umdeildum atvikum.
„Auðvitað var það ósanngjarnt og rifist um það í einhverjum þáttum. En svo fengum við tæknina og við erum alveg nákvæmlega jafnbrjáluð. En að þessu sinni að það hafi verið hné sem gerði einhvern rangstæðan. Réttlætistilfinning manns er nákvæmlega sú sama,“ segir hann um málið.
„Eins og fram hefur komið í þessu viðtali er ég íhaldskurfur þegar kemur að fótbolta, hefðasinni og á móti öllum framförum,“ bætir hann við léttur.
Þátturinn í heild er í spilaranum.