
Reykjavíkurmót meistaraflokks karla hefst á morgun.
Mótið hefst með leik Leiknis R. og Víkings R. á Domusnovavellinum kl. 17:00. Fjölnir og Fram mætast svo í sama riðli á mánudag í Egilshöll kl. 19:45.
KR eru ríkjandi meistarar eftir að hafa unnið Val 3-0 í úrslitaleik keppninnar 2025.
B-riðill hefst seinna eða í janúar. Þar eru Þróttur, Valur, KR og Fylkir.