
Búið er að draga í riðla fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu, sem fram fer næsta sumar í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
48 lið taka þátt í mótinu og er þeim skipt í tólf fjögurra liða riðla.
Mexíkó og Suður-Afríka leika opnunarleik á mótinu. Þau eru í A-riðli ásamt Suður-Kóreu. Þetta er endurtekinn opnunarleikur frá 2010, þegar mótið var haldið í Suður-Afríku. Írland, með Heimi Hallgrímsson í brúnni, verður í þessum riðli ef liðið fer áfram.
Athygli vekur að Noregur og Frakkland eru saman í riðli, en það verður án efa áhugaverð rimma.
A-riðill
Mexíkó, Suður-Kórea, Suður-Afríka, Danmörk/Norður-Makedónía/Tékkland/Írland
B-riðill
Kanada, Sviss, Katar, Ítalía/Norður-Írland/Wales/Bosnía
C-riðill
Brasilía, Marokkó, Skotland, Haítí
D-riðill
Bandaríkin, Ástralía, Paragvæ, Tyrkland/Rúmenía/Slóvakía/Kósovó
E-riðill
Þýskaland, Ekvador, Fílabeinsströndin, Curacao
F-riðill
Holland, Japan, Túnis, Úkraína/Svíþjóð/Pólland/Albanía
G-riðill
Belgía, Íran, Egyptaland, Nýja-Sjáland
H-riðill
Spánn, Úrúgvæ, Sádi-Arabía, Grænhöfðaeyjar
I-riðill
Frakkland, Senegal, Noregur, Írak/Bólivía/Súrinam
J-riðill
Argentína, Austurríki, Alsír, Jórdanía
K-riðill
Portúgal, Kólumbía, Úsbekistan, Kongó/Jamaíka/Nýja-Kaledónía
L-riðill
England, Króatía, Panama, Gana