Arijon Ibrahimovic er mættur til Ítalíu en hann er að ganga í raðir Lazio þar í landi.
Frá þessu greinir blaðamaðurinn Fabrizio Romano en Ibrahimovic mun skrifa undir lánssamning út tímabilið.
Lazio fær svo möguleika á að kaupa hann næsta sumar fyrir um 10 milljónir evra en leikmaðurinn er samningsbundinn Bayern Munchen.
Ef Lazio ákveður að nýta sér kaupákvæðið þá mun leikmaðurinn gera þriggja ára samning.
Um er að ræða 19 ára gamlan strák sem hefur spilað tvo deildarleiki fyrir Bayern og þá fjóra leiki í öllum keppnum – hann spilar framarlega á miðju eða á vængnum.