fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
433Sport

Heimtaði alltaf það dýrasta og besta en áttaði sig ekki á stöðunni – ,,Skil hvað mamma mín gekk í gegnum“

Victor Pálsson
Laugardaginn 2. ágúst 2025 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru fáir sem vita það að framherjinn Beto vann lengi á skyndibitastaðnum KFC en hann er fæddur og uppalinn í Portúgal.

Beto er í dag leikmaður Everton á Englandi og þénar vel fyrir sín störf þar en hann kom til félagsins frá Udinese árið 2023.

Beto vildi alltaf það flottasta og dýrasta sem krakki en áttaði sig á því snemma að móðir hans hefði ekki efni á því að borga það sama og aðrir foreldrar á hans yngri árum.

Hann ákvað að byrja að vinna fyrir sínum eigin hlutum og tók að sér starf hjá KFC áður en hann vakti athygli sem fótboltamaður.

,,Þetta var fín vinna. Ég vildi alltaf eignast mína eigin peninga, þar til ég var 15-16 ára gamall þá leið mér eins og það væri dekrað við mig,“ sagði Beto.

,,Ég vildi alltaf eignast það sama og skólabræður mínir en áttaði mig ekki á því að það væri ekki í boði fyrir mömmu, hún hafði ekki efni á sömu hlutum.“

,,Vinur minn á þessum tíma sagði við mig að pabbi hans hefði borgað fyrir bílprófið, ég fór heim og bað um það sama. Með tímanum þá get ég skilið hvað mamma mín gekk í gegnum og hvað hún gerði fyrir mig og systur mínar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Mourinho hjólar í dómarann og VAR eftir slæm úrslit um helgina

Mourinho hjólar í dómarann og VAR eftir slæm úrslit um helgina
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Borga tæpar 500 milljónir til að fá nýja stjórann

Borga tæpar 500 milljónir til að fá nýja stjórann
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Messi heimsótti heimavöll Barcelona í skjóli nætur – „Í gærkvöldi sneri ég aftur á stað sem ég sakna af öllu hjarta“

Messi heimsótti heimavöll Barcelona í skjóli nætur – „Í gærkvöldi sneri ég aftur á stað sem ég sakna af öllu hjarta“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Verður fyrsta verkefni Hermanns að hreinsa út á Hlíðarenda? – „Það er eitthvað annað“

Verður fyrsta verkefni Hermanns að hreinsa út á Hlíðarenda? – „Það er eitthvað annað“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Tveir dáðustu leikmenn United hissa á því að mark Van Dijk hafi ekki staðið

Tveir dáðustu leikmenn United hissa á því að mark Van Dijk hafi ekki staðið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Allt sauð upp úr þegar kærasti hennar kom að honum í rúminu – Segist hafa verið að hjálpa sauðdrukknum manni

Allt sauð upp úr þegar kærasti hennar kom að honum í rúminu – Segist hafa verið að hjálpa sauðdrukknum manni
433Sport
Í gær

Lykilmaður Liverpool sagður nálgast samkomulag við Bayern – Kemur þá frítt næsta sumar

Lykilmaður Liverpool sagður nálgast samkomulag við Bayern – Kemur þá frítt næsta sumar
433Sport
Í gær

Vilja bjóða United leikmann í skiptum til að fá Zirkzee

Vilja bjóða United leikmann í skiptum til að fá Zirkzee