fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Lýsir afar erfiðum mínútum Glódísar – „Heyrði ekki neitt og sá bara hversu illa henni leið, það var mjög erfitt“

Helgi Fannar Sigurðsson
Laugardaginn 5. júlí 2025 14:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Fannar Sigurðsson skrifar frá Sviss

Glódís Perla Viggósdóttir æfði með íslenska landsliðinu í dag, daginn fyrir leikinn mikilvæga gegn Sviss á EM annað kvöld. Það er þó enn tvísýnt með hennar þátttöku í leiknum, en eins og flestir vita hefur hún verið að glíma við veikindi.

„Hún var ekki með alla æfinguna. Við vildum hlífa henni við mestu átökunum og sjá hvernig hún myndi bregðast við þegar hún færi að hreyfa sig og í smá átök,“ sagði Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari á blaðamannafundi í Bern rétt í þessu.

„En við erum bjartsýn, það er ekkert annað sem við getum gert núna. Við sjáum svo hvernig kvöldið og nóttin verður hjá henni,“ sagði hann enn fremur.

Ingibjörg Sigurðardóttir var á fundinum með Þorsteini í fjarveru Glódísar. Hún var spurð út í hvernig það hafi verið að spila með landsliðsfyrirliðanum í fyrri hálfleik gegn Finnum, áður en Glódís fór af velli, að því er virðist fárveik.

„Það var alls ekki skemmtilegt. Það er ekki oft sem maður sér Glódísi í þessu ástandi og ég hef aldrei spilað með henni þegar hún er svona, maður heyrði ekki neitt og sá bara hversu illa henni leið, það var mjög erfitt. Ég vorkenndi henni ekkert smá mikið og hún er hetja að ná að klára 45 mínútur. Ég skil ekki alveg hvernig hún fór að þessu,“ sagði Ingibjörg.

Ísland tapaði fyrsta leik EM gegn Finnum og þarf á sigri að halda annað kvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Allt vitlaust í kringum Íslendingaliðið eftir gærdaginn – „Höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur“

Allt vitlaust í kringum Íslendingaliðið eftir gærdaginn – „Höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur“
433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate vill bara ræða við stóru strákana

Southgate vill bara ræða við stóru strákana