fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Jota ætlaði að taka ferjuna yfir til Englands – Var ráðlagt að fljúga ekki eftir aðgerð

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 3. júlí 2025 12:54

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Diogo Jota var á leið í ferju til Englands þegar dekk sprakk á bíl hans með þeim hræðilegu afleiðingum að hann og bróðir hans létu lífið.

Jota keyrði Lamborghini Urus bíl sinn og ætlaði að taka ferjuna frá Santander á Spáni yfir til Englands.

Jota hafði nýlega gengist undir smávægilega aðgerð á lunga og var ráðlagt að fljúga ekki strax, frá þessu er sagt í heimalandi hans Portúgal.

Ferjan fer frá Santander til Plymouth og átti að fara af stað klukkan 16:00 í dag og lenda í Bretlandi á morgun.

Jota var á ferð heim til Liverpool þar sem undirbúningstímabilið fer að fara af stað, hann og bróðir hans létust báðir í þessu hræðilega slysi.

Jota var keyptur til Liverpool árið 2020. Segja má að lífið hafi aldrei verið eins gott og undanfarið fyrir Jota, hann varð Englandsmeistari með Liverpool í vor, hann vann Þjóðadeildina með Portúgal í sumar og gifti sig svo fyrir tveimur vikum. Hann átti þrjú börn með eiginkonu sinni.

Hann var 28 ára gamall þegar hann lést en Jota gerði vel fyrir Liverpool og var í stóru hlutverki í landsliði Portúgals.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“