fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Bjarni rifjar upp markmiðin og talar um „lúserabrag“ – „Annað væri í raun skandall“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 2. júlí 2025 08:30

Skjáskot: K100

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Helgason, blaðamaður á Morgunblaðinu, skrifaði áhugaverðan pistil í blað gærdagsins, þar sem hann kom inn á markmiðasetningu íslenska kvennalandsliðsins fyrir komandi Evrópumót.

Ísland hefur leik í dag gegn Finnlandi, en um er að ræða fyrsta leik mótsins. Finnar eru á pappír slakasta lið riðilsins, en í riðli Íslands eru einnig Sviss og Noregur.

Íslenska liðið og þjálfarinn Þorsteinn Halldórsson hefur ekki farið leynt með það að liðið ætli sér upp úr þessum riðli og því fagnar Bjarni.

„Ég er ánægður með mark­miðasetn­ing­una hjá ís­lenska liðinu á þessu stór­móti. Liðið ætl­ar sér að kom­ast áfram,“ skrifaði hann meðal annars í pistli sínum.

„Það er miklu skemmti­legra mark­mið en að vinna leik, sem var yf­ir­lýst mark­mið fyr­ir mótið á Englandi. Það var ein­hver lúsera­brag­ur yfir því mark­miði,“ skrifaði hann enn fremur og á við EM 2022, þar sem Ísland gerði þrjú jafntefli og fór ekki upp úr riðlinum.

„Við erum með leik­manna­hóp­inn til þess að fara upp úr þess­um riðli og við eig­um að gera það, annað væri í raun skandall.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs