Það er mikill áhugi á Heung-Min Son frá Sádi-Arabíu ef marka má enska fjölmiðla.
Samningur Son við Tottenham rennur út eftir ár og vill félagið ekki missa hann frítt. Gæti það því neyðst til að selja hann í sumar.
Talksport segir sádiarabísku félögin Al-Ahli, Al-Qadsiah og Al-Nassr vilja Son. Eru þau til í að greiða um 35 milljónir punda.
Hinn 33 ára gamli Son hefur verið hjá Tottenham í tíu ár en náði ekki alveg þeim hæðum sem hann er vanur á síðustu leiktíð.