Argentína hefur samkvæmt fréttum samþykkt að mæta Rússlandi í æfingaleik í nóvember, er þetta talið nokkuð umdeilt.
Flestar þjóðir hafa neitað að spila við Rússland eftir innrás þeirra í Úkraínu árið 2022.
Rússum var vísað úr keppnum FIFA og UEFA en hafa spilað nokkra æfingaleiki eftir það.
Iðulega takar Rússar upp veskið og borga vel fyrir æfingaleiki og svo virðist sem Argentína ætli að taka því boði.
Frá þessu er greint í Argentínu og er vitnað í heimildarmenn í Rússlandi.